157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:16]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það er nú kannski með semingi sem ég styð þessa breytingartillögu og kannski bara vegna þess að þetta er svo ágætt fólk sem leggur hana fram og ég treysti því alla jafna. Þegar ég horfi á þessar tvær tillögur og spurninguna sem verður trúlega samþykkt hér á eftir þá er ég bara býsna ánægð með þessa spurningu sem stjórnarmeirihlutinn leggur til: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið? Vegna þess að þetta er áminning til kjósenda um að það er búið að fara í þessar viðræður. Þessi leikur var farinn hér fyrir nokkrum árum. Hann tók nokkur ár og skilaði engum árangri. Hann sigldi í strand. Mikilvægir kaflar voru ekki opnaðir, menn gátu ekki opnað, menn treystu sér ekki til að ræða það sem skipti máli. Þessu var siglt í strand og það tók nokkur ár að gera það, og af hvaða fólki? Af sama fólki og situr hér og ætlar að fara aftur í þetta leikrit, aftur í þessa hringekju.