þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Forseti. Ég sagði hér einhvern tímann áðan að þetta mál væri mjög illa undirbúið af þessari ríkisstjórn og lagt fram í algeru skötulíki. Það er orðið örlítið skárra eftir þá vinnu sem átt hefur sér stað. Það er þó þessi tillaga. Upphaflega átti að halda áfram viðræðum við Evrópusambandið. Hæstv. utanríkisráðherra svaraði því þannig til að það væri alveg skýrt hvað verið væri að kjósa um þrátt fyrir að landskjörstjórn og Feneyjanefnd teldu það bara alls ekki skýrt og hvettu okkur til að breyta. Ég er alveg sammála því að það að hefja á ný er skárri kostur en upphafleg tillaga ríkisstjórnarinnar. Ég hefði haldið að það væri enn þá skýrara að spyrja hvort fólk vildi ganga til viðræðna við Evrópusambandið og þá væri umboð þessarar ríkisstjórnar skýrt þar að lútandi. Ég átti ekki von á því að það yrði samþykkt frekar en aðrar tillögur frá minni hlutanum en enn þá heyrum við það í dag í svörum hæstv. ráðherra að það er ekki einu sinni skýrt hvað þessi spurning þýðir, hvað það þýðir að segja já við þessari spurningu 29. ágúst næstkomandi eða hvað það þýðir að segja nei (Forseti hringir.) því ríkisstjórnin er ekkert búin að ákveða hvað hún ætlar að gera þá.