þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Þetta mál er illa undirbúið og sem betur fer tók stjórnarmeirihlutinn ákveðnum sönsum með því að breyta spurningunni. En hér er verið að bæta hana enn frekar þannig að það liggi enn skýrar fyrir hvað er verið að kjósa um. Orð skipta máli, hvernig þeim er raðað saman, það ættum við öll að vita. Eitt orð getur breytt öllu. Þessi tillaga stjórnarandstöðunnar — það er í raun ótrúlegt að horfa á skjáinn og sjá menn kjósa gegn henni í stað þess að skapa meiri sátt um málið og leyfa þessu að fara í gegn. Og að tala um að það séu engar röksemdir fyrir því að breyta þessu er líka sérstakt. Við verðum að hafa spurninguna hafna yfir allan vafa. Það er kannski erfitt að breyta þessu núna en þetta sýnir alla vega hver staðan er í þessu máli.