157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:25]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Við greiðum nú atkvæði um tillögu sem felur í sér að ráðherra sé skylt að greina frá því 30 dögum fyrir atkvæðagreiðsluna hver samningsmarkmið landsins séu, hver samningsmarkmið okkar séu í þessum viðræðum. Og þingmenn hér í þessum sal segja nei við því. Hvað er eðlilegra en að gera kröfu til þess að ríkisstjórnin greini þjóðinni frá því hvaða markmið hún fer með í þessar samningaviðræður? Er það ekki eðlilegt? — Þingmaðurinn segir já.