þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Til að byrja með þá veit ég ekki hversu heppilegt það sé að í þingsályktunartillögu, sem sett er fram á grundvelli kosningalaga, séu sett fram atriði önnur en þau sem lúta beinlínis að þjóðarafgreiðslunni sjálfri, þ.e. dagsetning hennar, spurning og svarmöguleikar en ekki einhver viðbótarskilyrði. Feneyjanefndin hefur til að mynda ekki haft tækifæri til að bregðast við slíkum viðbótarskilyrðum. Spurningu um þau var ekki beint til hennar og hún lagði slík viðbótarskilyrði sannarlega ekki til að fyrra bragði. Þar að auki koma meginsamningsmarkmið Íslands fram í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar í sérstökum og nokkuð ítarlegum kafla, það er í þeim sem vilji þingsins kemur fram. Ég segi nei.