þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Síðast þegar ráðist var í aðildarviðræður við Evrópusambandið, þær viðræður sem nú er reynt að endurlífga, voru menn sendir af stað með ákveðin rauð strik, eins og það var kallað, skilyrði frá þinginu um hvað mætti gera. Hér fáum við aldeilis staðfestingu á því að meiri hlutinn á Alþingi leggur ekki í að leggja hæstv. utanríkisráðherra línurnar um áframhaldandi eða nýjar viðræður og gerir sér þá væntanlega grein fyrir því að það er ekki raunhæft að hæstv. ráðherra geti staðið við slíkar kröfur. Með öðrum orðum er hér með staðfest af hálfu Alþingis að svari menn já í áformaðri þjóðaratkvæðagreiðslu þá séu þeir einfaldlega að gefa hæstv. utanríkisráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, (Forseti hringir.) auðan tékka á fullveldi Íslands í viðræðum við Evrópusambandið.
(Forseti (ÞSv): Þingmaðurinn segir?)
Ég segi já.