157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:29]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það er auðvitað með ólíkindum að það hafi þurft að koma til þessarar breytingartillögu; að hv. utanríkismálanefnd hafi getað sammælst um að þessi samningsmarkmið yrðu kynnt sérstaklega þjóðinni af hálfu allra ráðherra sem fara með þessa málaflokka en ekki veittur hér óútfylltur tékki eins og hefur verið lýst hér til ráðherra sem ætlar að fara fyrir samningaviðræðunum. Í raun hefur þetta verið það sem kannski umræða undanfarna daga hefur helst snúist um. Það er með miklum ólíkindum að hæstv. ráðherrar geti ekki haft frumkvæði að því sjálfir að upplýsa um þessi samningsmarkmið.

Það er líka áhugavert að hv. þingmenn stjórnarflokkanna skuli greiða atkvæði um þessa breytingartillögu en enginn þeirra tekur til máls og gerir grein fyrir atkvæði sínu utan hv. formanns utanríkismálanefndar sem lýsir ekki afstöðu sinni til efnis þessarar breytingartillögu. Þetta er mjög furðulegt. Hvernig geta menn verið á móti því að skerpa á samningsmarkmiðum (Forseti hringir.) og upplýsa þjóðina um hver samningsmarkmiðin eigi að vera í þessum aðildarviðræðum? Þetta er stórfurðulegt og áhyggjuefni að sjálfsögðu.

(Forseti (ÞSv): Þingmaðurinn segir?)

Þingmaðurinn segir já.