157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:31]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Þingmaðurinn mun segja já, svo það sé enginn vafi á því. Hér hefur verið vísað til þingsályktunar frá 2009 og nefndarálits meiri hlutans sem þá var. Það var skýrt. Meiri hlutinn þá bætti verulega í vinnu framkvæmdarvaldsins á þeim tíma og setti rauð strik, skilyrði. Við höfum heyrt, m.a. frá formanni utanríkismálanefndar og ýmsum aðilum sem komu fyrir nefndina, að þetta hefði verið Biblía þeirra sem fóru og töluðu við Evrópusambandið. Því er ekki að heilsa með meirihlutaáliti meiri hlutans í dag, að það séu rauð strik og að það séu skýr skilyrði fyrir þessari vegferð. Þess vegna kemur þessi tillaga fram og þess vegna er hún nauðsynleg. Það er ótrúlegt að menn ætli að hafna því hver á fætur öðrum í heyranda hljóði að 30 dögum áður en þjóðaratkvæðagreiðslan skuli fara fram skuli ríkisstjórnin kynna samningsmarkmið fyrir þeirri sömu þjóð sem á að segja já eða nei um hvort hún ætli að fara í vegferð í boði Kristrúnar Frostadóttur og hennar ríkisstjórnar.