157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:32]
Horfa

Snorri Másson (M):

Frú forseti. Enn er aukið á áhyggjur manns af þessari óvissuferð sem hér er lagt af stað í. Engin vissa fæst fyrir tímamörkum þess ferlis sem fram undan er. Ekki er einu sinni víst hvort stjórnarflokkarnir hugsi sér að leggja fram samninginn í síðari atkvæðagreiðslu eins og þó er boðað í þingsályktunartillögunni. Og nú er lýðum ljóst að hæstv. ríkisstjórn vill ekki einu sinni gera þjóðinni grein fyrir því hvað hún hyggst fyrir í þessum samningaviðræðum eða leggja línur með það fyrir fram eins og þó var gert í síðasta misheppnaða aðildarferli að Evrópusambandinu. Það er vægast sagt, virðulegur forseti, afhjúpandi fyrir það hve gífurlega óvissu við köllum yfir þjóðina með því að samþykkja að fela þessari klofnu ríkisstjórn að fara inn í þessa vegferð með óútfylltan tékka. Það er mikill ábyrgðarhluti fyrir okkur þingmenn hér að leiða þjóðina inn í það ferli.

(Forseti (ÞSv): Þingmaðurinn segir?)

Já.