157. löggjafarþing — 112. fundur, 28. maí 2026.
þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
516. mál
Frú forseti. Hér er ekki verið að taka ákvörðun um að gera grein fyrir samningsmarkmiðunum 30 dögum fyrir þetta heldur 90 dögum og rúmlega það. Ég hvet þingmenn sem ekki hafa lesið þau samningsmarkmið sem koma fram í meirihlutaáliti hv. utanríkismálanefndar til að gera það. Þar eru lagðar línur, lögð fyrir skýr skilyrði fyrir mjög mörgum af þeim þáttum sem samningurinn mun snúast um. Þess vegna segi ég nei við þessu.