157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:35]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S):

Forseti. Í tilefni af orðum hv. þm. Pawels Bartoszeks þá verð ég nú að koma hingað upp í pontu og ítreka að það er eðlilegasti hlutur í heimi að fjallað sé um kynningu á málefninu í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er raunar sérstakur kafli í kosningalögunum, svo því sé haldið til haga, sem fjallar akkúrat um kynningarþáttinn og gegnir þar landskjörstjórn mikilvægu hlutverki. Hún áréttar það raunar í umsögn sinni til Alþingis að það sé ekki nóg að leggja spurningu fyrir þjóðina heldur verði þjóðin að gera sér grein fyrir hver áhrifin verða, hvort heldur sem svarið er já eða nei, þ.e. að kjósendur verði upplýstir um áhrif þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þetta kemur líka fram í viðmiðum Feneyjanefndarinnar sem hv. þingmanni er tíðrætt um. Að sjálfsögðu er það mjög eðlileg krafa, það er í raun og veru lágmarkskrafa, að ríkisstjórnin kynni fyrir þjóðinni opinberlega samningsmarkmið sín í þessu aðildarferli þannig að hún geti gert sér grein (Forseti hringir.) fyrir afleiðingum þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Ég segi því já.