157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:36]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég er bit. Ég er bit yfir því að fólk sem hefur komið hér ítrekað upp og sagst treysta þjóðinni ætlar ekki að segja þjóðinni hver samningsmarkmiðin eru, ætlast til þess að þjóðin gangi til atkvæða og segi bara já og gefi bara auðan tékka til hæstv. utanríkisráðherra um samninginn. Það er bara ekkert skýrt í nefndaráliti meiri hlutans um einhver samningsmarkmið. Það eru engin rauð strik. Þetta eru bara yfirlýsingar sem hafa heyrst frá ráðherrunum og þeim ber ekki einu sinni saman. Hversu eðlilegt er það í anda þess að treysta þjóðinni, í anda þess að gefa réttar upplýsingar, að upplýsa þjóðina um samningsmarkmiðin a.m.k. 30 dögum áður en gengið er til atkvæða?

Virðulegur forseti. Þingmaðurinn segir já.