157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:37]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Forseti. Nei, ég get ekki samþykkt þessa tillögu vegna þess að ég vil ekki, líkt og hv. þm. Víðir Reynisson sagði hérna á undan mér, að kynningin fari fram 30 dögum fyrir þessa þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég vil að hún fari fram frá og með deginum í dag og við höfum vissulega séð álit meiri hluta utanríkismálanefndar. Við höfum séð greinargerðina með þingsályktunartillögunni og þarf að segja það aftur og aftur að það sé ekkert í þessum skjölum — lesið þetta. Það er vissulega verið að fara yfir þau markmið og ég vona að samninganefndin fari hnarreist út, taki mið af þeim og vinni eftir þeim, haldi spilunum eðlilega að einhverju leyti þétt að sér og að hér liggi fyrir samningur. Ég vildi óska þess að stjórnarandstaðan kæmi inn í þá vinnu að móta samningsmarkmiðin. Það væri óskandi. Þess vegna er ég ánægð að við séum að ræða samningsmarkmiðin aðeins hér. Þau hafa ekkert lagt af mörkum við það að búa hér til þessar rauðu línur, vera í málefnum. Formið umfram allt. Getur verið, forseti, að það sé ekkert sem þau óttist meira (Forseti hringir.) en góður samningur sem íslenska þjóðin gæti mögulega fellt sig við?