157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:39]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég segi já. Engin vinna hefur farið fram núna til að kortleggja markmið og skilyrði Íslands varðandi okkar hagsmuni eins og var gert árið 2009. Upptalning hagsmunasviða og óljóst orðalag í meirihlutaáliti er ekki slík vinna. Nei, vinnan á að fara fram eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna, eins og kemur skýrt fram í tillögu hæstv. utanríkisráðherra sem biður um opinn tékka þings og þjóðar til að stýra þessari vinnu. Þjóðin á að treysta í blindni hagsmunagæslu hæstv. utanríkisráðherra og mati hennar á því hvort og hvaða hagsmunir Íslands séu undir, utanríkisráðherra sem er formaður flokks sem var stofnaður um það eina markmið að Ísland gangi í Evrópusambandið. Það er hvorki sanngjarnt né lýðræðislegt að hæstv. utanríkisráðherra fari fram á að fá að semja við ESB án þess að hún kynni fyrir þjóðinni þessa hagsmunagæslu fyrir Ísland. Við leggjum því til breytingartillögu um að hæstv. ráðherra kynni það fyrir þjóðinni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna, eða treystir hæstv. utanríkisráðherra ekki íslensku þjóðinni?

(Forseti (ÞSv): Þingmaðurinn segir já.)