157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:41]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Nálgun ríkisstjórnarinnar er einhvern veginn svona: Við ætlum að kanna hvað felst í að vera í Evrópusambandinu. Og ef menn benda á hvað Evrópusambandið er er sagt: Nei, nei, nei, það er hægt að semja um þetta allt saman. Og þegar það er bent á að það hafi aldrei verið gert áður er sagt: Jú, jú, við gerum það. Og allt sem er bent á, t.d. þegar bent er á að við þurfum að fara í sameiginlega sjávarútvegsstefnu, sem þýðir að öllu óbreyttu að allt sem við stjórnum núna fari yfir til Evrópusambandsins, er sagt: Já, nei, nei, við semjum um þetta. Þá segja menn: Já, ókei. Er ekki allt í lagi að kynna það fyrir þjóðinni til þess að taka ákvörðun? Hvað á að semja um? Hverjar eru kröfur okkar? Hvar eru rauðu línurnar? Menn reyndu það alla vega í Jóhönnustjórninni. Þá er bara sagt: Lesið meirihlutaálit utanríkismálanefndar. Það er 50 síðna moðsuða þannig að ef einhver les það, sem ég hvet fólk til að gera því að það á alveg eftir að sannfærast um að það eigi alls ekki að fara í Evrópusambandið — ég ætla bara að segja ykkur að það er engin skemmtilesning. En mesti gallinn (Forseti hringir.) við það, virðulegur forseti, er að það eru engar rauðar línur þar. Það eru engin skilyrði. Ég er nú (Forseti hringir.) ekki mikið í því, virðulegi forseti, að hrósa Jóhönnustjórninni en hún kemur vel út í samanburði við þessa stjórn þegar kemur að þessari óvissuför. Ég segi já.