157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:43]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegur forseti. Það er reyndar dálítið athyglisvert í ljósi þeirrar umræðu sem hér var áðan að fólk vantreystir ríkisstjórninni en er svo með tillögu um að hún myndi leggja fram einhver önnur samningsmarkmið en þau sem utanríkismálanefnd hefur komið sér saman um. En alla vega. Hér er um annað mál að ræða. Í þessari breytingartillögu er brugðist við áliti landskjörstjórnar og lagt til að spurningin verði: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið? Þetta er tillaga frá meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Hún er að mínu mati í samræmi við ábendingar Feneyjanefndarinnar. Hún er að mati landskjörstjórnar bæði skýr, skiljanleg og hlutlaus. Hún leggur þá til hliðar vangaveltur um hvort umsóknin sé gild. Það er óumdeilt að viðræður áttu sér stað einu sinni og með þessari spurningu er einfaldlega spurt hvort ríkisstjórn eigi að fá umboð til að hefja aðildarviðræður að nýju. — Ég segi já.