157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:44]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Þessi tilraun meirihlutans til að bæta fyrir hroðvirknisleg vinnubrögð hæstv. ráðherra og koma til móts við alvarlegar athugasemdir landskjörstjórnar og Feneyjanefndar gengur ekki nógu langt. Þegar þjóð er kölluð til atkvæðagreiðslu um svo stórt mál verður spurningin að vera hafin yfir allan vafa. Tilvísun í viðræður Jóhönnustjórnarinnar, eins og meirihlutinn leggur hér til, er gildishlaðin og gengur út frá umdeildri forsendu, þótt ég hafi að vísu gaman af útleggingu hv. þm. Sigríðar Á. Andersen um að kjósendur hafi gott af þessari áminningu um misheppnaðan ESB-leiðangur Jóhönnustjórnarinnar. Umdeildar forsendur ber að varast, eins og landskjörstjórn og Feneyjanefndin hafa bent á. Tillaga meirihlutans er því ekki nægjanlega skýr og óskilyrt. Það er miður að meirihlutinn hafi ekki náð sátt við stjórnarandstöðu um þetta grundvallaratriði.