þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Við í Framsókn sitjum hjá, greiðum ekki atkvæði. Þetta orðalag er sannarlega betra en það sem ríkisstjórnin og meiri hlutinn urðu afturreka með. Og aftur: Lélegur undirbúningur. Það á að leita til landskjörstjórnar um álit samkvæmt lögum. Því var sleppt. Það hefði verið skynsamlegt að leita til Feneyjanefndarinnar. Því var líka sleppt en báðir þessir aðilar hafa lagt blessun sína yfir þennan hluta.
Það vakna hins vegar upp spurningar við þetta orðalag, að hefja á ný aðildarviðræður. Þá vakna auðvitað spurningar: Gildir þá samt fyrri þingsályktunin? Gildir þá bréf Jóhönnu og Össurar sem var ekki vísað í í þingsályktuninni sem menn segja samt að hafi verið notuð sem Biblía samninganefndarinnar? Hvað þýðir á ný nákvæmlega hér? Það verður því miður almenningur í landinu að gera upp við sig þegar hann tekur ákvörðun um hvort hann ætli að segja já (Forseti hringir.) og treysta ríkisstjórninni fyrir þessari furðulegu vegferð eða hvort hann ætli að segja nei og halda áfram að byggja upp Ísland eins og við höfum gert svo vel síðastliðna átta áratugi.