þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vildi bara koma hér upp og gera grein fyrir þeirri afstöðu minni að þetta er góð tillaga. Mig langar líka að segja það með mjög almennum hætti hér að mér finnst svolítið dapurlegt hvernig er talað um það að þegar þingmáli er breytt eftir umsögn þá sé verið að gera einhvern afturreka með eitthvað. Þingið gengur út á þetta, þinglega meðferðin gengur út á þetta. Það er bara nákvæmlega þannig. Þess vegna eru gerðar breytingar á málinu í samræmi við góðar ábendingar sem komu fram. Það er ekki verið að gera neinn afturreka með eitt eða neitt. Þetta er fín breyting. Hún bætir málið. Þingið bætir oft mál ríkisstjórnar sem hingað koma inn. Til þess er leikurinn gerður.