157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:50]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Ég er lýðræðissinni og trúi á grunnhugsun lýðræðisins og leikreglur þess. Nú er þetta mál í höndum þeirra sem umboðið byggir á, þjóðarinnar sjálfrar. Hvort sem fólk kaus Viðreisn, Samfylkingu, Flokk fólksins, Sjálfstæðisflokkinn, Miðflokkinn eða Framsókn þá á það rétt á að fá að segja sitt álit og eiga þátt í þessari ákvörðun. Því segi ég já fyrir alla, sama hvar í flokki þeir standa.