þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég segi já við þessari tillögu. Ég geri það af miklu þjóðarstolti. Ég vil þakka hv. utanríkismálanefnd fyrir samvinnuna í málinu, öllum í nefndinni. Þótt okkur greini á um það hvar framtíð Íslands sé best borgið er það í lok dags íslensku þjóðarinnar að ákveða það samkvæmt þessu uppleggi. Ég vil líka þakka sérstaklega formanni nefndarinnar, Pawel Bartoszek, fyrir mikla og góða vinnu. Um þetta vil ég segja að ég held að við séum ekki svo ósammála um það hvað Íslandi er fyrir bestu í auðlindamálum, um það að standa vörð um fiskimiðin okkar, um búfjárstofna, um íslenskan landbúnað — ég held að við séum hins vegar að einhverju leyti ósammála um það hvort það sé raunhæft að ná þessum markmiðum. Við skulum láta á það reyna. Við skulum fara út og gera ýtrustu kröfur ef þjóðin leyfir. En kannski er einhver munur á því hvar við sjáum áskoranirnar. Íslenskur almenningur hefur ekki fengið að njóta sömu tækifæra og breiðustu bökin í samfélaginu, þau sem búa í evruhagkerfinu, og heimilin í landinu finna fyrir því. Ef við viljum losna undan viðjum örmyntar þá liggja í því ansi mörg tækifæri.