þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Það er með stolti, ánægju og sannfæringu sem ég segi já í þessari atkvæðagreiðslu. Ég held að þjóðin skiptist í alla vega þrjá hópa. Sumir hafa hjartans sannfæringu fyrir því að segja nei. Aðrir hafa hjartans sannfæringu fyrir því að segja já og svo er einhver hópur, hann er kannski stærstur, hann er alla vega umtalsverður, sem er ekki alveg viss en er opinn fyrir því að hlusta og velta málinu fyrir sér. Á þessum hópi hafa dunið að hluta til misvísandi skilaboð um hvað geti falist í endanlegum samningi. Það er svo mikilvægt að átta sig á því að það endanlega svar getur í sumum tilvikum ráðist af því að benda á hvað er satt og rétt en í öðrum tilvikum getur það oltið á niðurstöðu samninganna sjálfra. Svarið við því (Forseti hringir.) hver endanleg niðurstaða er þar fæst ekki nema að sjá samning; segja já í haust, taka þátt í ferlinu og sjá lokasamning. Ég segi já.