157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:55]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ríkisstjórnin og meiri hlutinn hefur haldið illa á þessu máli frá upphafi. Flýtt sér allt of mikið, veitt minni upplýsingar en meiri til þjóðarinnar og leynt hana upplýsingum og ráðgast við ESB frekar en Alþingi og þjóðina. Það er miður þegar um svo risavaxið mál er að ræða fyrir íslensku þjóðina. Við sjálfstæðismenn erum andvíg inngöngu Íslands í ESB og öllum skrefum í þá átt. Það þýðir ekki að við séum á móti þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er þingmeirihluti fyrir málinu, við munum ekki standa í vegi fyrir því og ég sit því hjá. Hlakka síðan til að segja þar nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Nei við því að framselja völd sem við höfum barist í aldir fyrir að fá í hendurnar. Völd til að ráða sjálf málefnum Íslands. Enginn gerir það betur en við Íslendingar og enginn verðmiði verður settur á það.