þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég hlakka til þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Núna er verkefni okkar að koma staðreyndum til almennings. Ríkisstjórnin hefur gert allt til að koma í veg fyrir að almenningur fái staðreyndir. Hér tala menn eins og Evrópusambandið sé eitthvert himnaríki, virðulegur forseti. Ég bara hvet hvern og einn til að kynna sér stöðuna í löndum Evrópusambandsins. Ég hvet alla til að kynna sér það hvernig ákvarðanir eru teknar sem varða fólkið í þessum löndum. Við megum aldrei láta það verða að glutra niður þeim völdum sem við fengum eftir mikla baráttu til Brussel. Það má aldrei verða.
En svona á persónulegum nótum þá biðst ég afsökunar á því hvað ég hef verið lengi hér, ég fékk einhverja sýkingu í ökklann, örugglega ESB-sýkingu, virðulegi forseti. En ef við segjum nei í haust þá er nú enginn annar skaði af þessu máli (Forseti hringir.) nema það að við erum búin að eyða dýrmætum tíma sem ríkisstjórnin hefði átt að nota í að reyna að lækka vexti og verðbólgu og bæta samkeppnisstöðu (Forseti hringir.) og lífskjör þjóðarinnar. En það var hennar vilji að fara í þessa vegferð og nú byrjar slagurinn. (Forseti hringir.) Ég sit hjá við þessa atkvæðagreiðslu.