þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Spurning mín er í rauninni einföld: Til hvers var barist? Við Íslendingar höfum byggt þetta land í 1200 ár. Í heila öld af þeim tíma höfum við ráðið okkur sjálf sem fullvalda þjóð og sú sjálfstæðisbarátta var ekki háð af tilviljun. Hún var háð vegna þess að kynslóðirnar á undan okkur trúðu því að Íslendingar ættu sjálfir að ráða eigin málum, eigin auðlindum, eigin lögum og eigin framtíð. Til hvers börðust eiginlega afar okkar og ömmur fyrir 100 árum? Var það til þess að við í allri okkar velsæld myndum nú segja: Við treystum okkur ekki lengur til að stjórna landinu okkar sjálf? Ég hafna þeirri hugsun alfarið því Ísland er ekki of lítið til að vera sjálfstætt. Ísland er ekki of fámennt til að taka eigin ákvarðanir og Ísland er ekki of veikt til að standa á eigin fótum. Þess vegna styð ég ekki þessa vegferð ríkisstjórnarinnar inn í Evrópusambandið. Við Sjálfstæðismenn munum ekki standa í vegi fyrir því að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram því við treystum þjóðinni, ekki af ótta við útlönd, (Forseti hringir.) ekki af einangrunarhyggju heldur af trausti á Íslandi, íslensku þjóðinni og þeirri einföldu sannfæringu að við eigum sjálf að ráða okkar landi. (Forseti hringir.)
Virðulegi forseti. Hversu smá ætlum við að vera? Ég kýs að trúa á Ísland og þess vegna styð ég ekki þessa vegferð.
(Forseti (ÞSv): Forseti skilur það svo að þingmaðurinn greiði ekki atkvæði.)