þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég hreyfi engum mótbárum við því að þjóðin fái að kjósa í þessu stóra máli eins og í öðrum stórum málum. Það er mikilvægt og þess vegna mun ég sitja hjá í þessu máli í dag. Lýðræðið birtist okkur í fullum skrúða þegar við setjum mál í dóm þjóðarinnar. Það er eitthvað sem er stærra en skoðanir og deilumál sem við ræðum hér í þessum þingsal. Mig langar til að vera með hvatningu til ríkisstjórnarinnar og til okkar allra fyrir næstu mánuði. Leiðsögn þjóðarinnar verður aldrei betri eða skýrari en þátttakan og þekkingin sem næst fram með henni. Þátttaka þarf að vera breið frá fólki á öllum aldri, breið úr þýði þjóðarinnar, og þekking þarf sömuleiðis að vera djúp. Fólk þarf að fá upplýsingar um samningsmarkmiðin, um áhrif og annað sem skiptir máli. Þekking og þátttaka — þess vegna vil ég hvetja alla til að leggja allt sitt í þessa vegferð og ég hvet almenning líka til að kynna sér málin vel og sérstaklega auðlindamálin. Ég sit hjá.