157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:01]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Mér heyrist að hér sé verið að ýta úr vör einu stærsta og mikilvægasta hagsmunamáli þjóðarinnar. Það hryggir mig hversu mikill asi og flaustursleg vinnubrögð hafa verið um ákveðna þætti þessa máls. En ég mun ekki setja mig upp á móti því að núna fái þjóðin valdið til þess að taka þessa risastóru ákvörðun og greiði ég því ekki atkvæði um málið. Ég vona svo innilega að hæstv. ríkisstjórn standi undir ábyrgð sinni um að veita réttar upplýsingar um hvað raunverulega sé í boði, um hvað raunverulega málið snýst, svo þjóðin fái sanngjarnt tækifæri til þess að gera upp hug sinn. Í húfi er eitt stærsta hagsmunamál besta ríkis í heimi. (Forseti hringir.) Það er mikill ábyrgðarhluti að við öll hér pössum okkur (Forseti hringir.) hvernig við tölum svo að þjóðin fái sem best tækifæri til að taka sína ákvörðun.

(Forseti (ÞSv): Forseti bendir þingmönnum vinsamlegast á að ræðutíminn þegar gerð er grein fyrir atkvæði sínu er ein mínúta.)