157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:03]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Ég hef áður komið inn á, og raunar margoft í mörgum ræðum, að þetta mál er allt saman í skötulíki. Ég hef líka sagt það áður að það er ekkert ríki sem sækir um aðild að Evrópusambandinu sem ekki ætlar sér að ganga þar inn. Það er heldur ekkert ríki sem ætlar sér bara að kíkja í pakkann með aðlögunarviðræðum. Við skulum hafa það á tæru. Það er ekki margt sem kemur fram í meirihlutaáliti utanríkismálanefndar. Þó kemur þar fram, sem ég vil vekja sérstaka athygli á hér, að það verði að gera ráð fyrir „að tollvernd á landbúnaðarvörur frá öðrum aðildarríkjum myndi falla niður með aðild að tollabandalagi ESB“. Þetta finnst mér stórvægilega ámælisvert vegna þess að menn ættu að vita hve tollvernd er mikilvæg í íslenskum landbúnaði.

Hvað varðar mína afstöðu hér þá hugnast mér ekki að ganga í Evrópusambandið. Mér hugnast ekki að hefja aðlögun að Evrópusambandinu. (Forseti hringir.) Ég hef sagt að ég muni ekki geta stutt þetta mál og ég mun greiða atkvæði gegn þessari tillögu.