þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Hversu smá viljum við vera? spyr formaður Sjálfstæðisflokksins. Ég held að fólk sem fylgist með þessari umræðu ói við þessu ofstæki sem birtist hérna. Það er enginn smár af því að vilja ganga til viðræðna við Evrópusambandið eða kanna hvað í því felst. Það er bara fullkomlega lögleg skoðun rétt eins og það er lögmæt skoðun að vilja það ekki. Það eru kostir og gallar fólgnir í því að Ísland gangi í Evrópusambandið. Við getum gert ráð fyrir að viðskiptakostnaður lækki, samkeppni aukist og bein erlend fjárfesting aukist. Við vitum það líka að sögulega hefur það stundum þjónað okkur ágætlega að hafa sveigjanleikann sem fylgir sjálfstæðri peningastefnu þótt margt bendi til þess að ávinningurinn af því sé að verða minni og minni í breyttum heimi. Það eru kostir og gallar en það er engin leið að vega og meta tækifærin og áskoranirnar, bera saman núverandi ástand miðað við það sem hugsanlega yrði með Evrópusambandsaðild, nema með því að hefja viðræður við Evrópusambandið. Þetta er mín afstaða. Þess vegna styð ég þetta eindregið. Ég ætla ekki að fara að reyna að hrútskýra einhvern veginn fyrir fólkinu heima í stofu hvernig það á að greiða atkvæði eða hvað felst í jáinu eða hvað felst í neiinu. Það er skýrt í nefndaráliti meiri hluta utanríkismálanefndar. Við skulum fara af stað í þennan leiðangur. Nú fer valdið til þjóðarinnar. Tökumst bara á um þetta með málefnalegum hætti. Evrópusambandið er hvorki himnaríki né helvíti. (Forseti hringir.) Það er fullkomlega lögmæt skoðun að vilja fara þangað inn eða vilja það ekki. (Forseti hringir.) Nú fer valdið til þjóðarinnar og í öllu falli fáum við góða leiðsögn um framhaldið. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )
(Forseti (ÞSv): Og þingmaðurinn segir?)
Já.