157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:08]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Þessi vegferð snýst um auðlindir. Hún snýst um umráðarétt yfir auðlindum sem við höfum notað til að byggja upp samfélag sem er með einhver mestu lífsgæði í heimi á grundvelli ákvörðunarréttar okkar um að ráðstafa auðlindunum sem við höfum gert með skynsömum og sjálfbærum hætti. Við stöndum framar öðrum þjóðum í því. Umráðarétturinn er ekkert augljós og hæstv. ráðherrar og þingmenn meirihlutaflokkanna hafa verið að gefa hér væntingar um einhverjar sérstakar undanþágur fyrir Íslendinga í þessum efnum þrátt fyrir að það stangist á við meginreglur og lög Evrópusambandsins.

Ég fór hér áðan yfir sögu Íra sem er ný, 50 ára samningur sem var talinn varanlegur réttur Írlands til að vernda fiskveiðar þeirra þegar lítið yrði til skiptanna. Nú hefur verið gengið fram fyrir skjöldu og þeim hafnað um þetta af hálfu — undir forystu stærri þjóða Evrópusambandsins. (Forseti hringir.) Nú horfa Írar á flota ESB-þjóðanna veiða í sinni lögsögu (Forseti hringir.) þar sem er til skiptanna, með flotann sinn bundinn við bryggju. (Forseti hringir.) Þeir geta veitt nokkrar vikur á yfirstandandi ári (Forseti hringir.) á meðan þeir horfa á skip Evrópusambandsþjóðanna vera að veiða.

(Forseti (ÞSv): Þingmaðurinn segir?)

Nei.