þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég mun ekki standa gegn því að þjóðin fái að kjósa um þetta mál. Ég mun sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu. En það er nokkuð ljóst að ríkisstjórnin hefur gefist upp á efnahagsmálunum, að ná niður vöxtum og verðbólgu og ætlar sér að fara inn í draumalandið ESB þar sem vextir og verðbólga eru víst lægri en annars staðar gerist. Ég hvet þjóðina bara til að skoða það vandlega. Lágir vextir í sumum ríkjum Evrópu eru einmitt merki um stöðnun og litla framleiðni. Það er eitthvað sem við viljum ekki. Hægri stjórn 2013–2016 hélt vel á málunum þar sem vextir og verðbólga voru í lagi þangað til fall Play, Covid og jarðeldar keyrðu upp vexti og verðbólgu.
Kjósum nei í lok sumars og höfum það í huga (Forseti hringir.) að líf eins stjórnmálaflokks hangir á bláþræði í þeirri atkvæðagreiðslu og kannski mun málflutningurinn litast af því.
(Forseti (ÞSv): Þingmaðurinn segir?)
Ég sit hjá.