þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Segjum sem svo að við séum stödd hér í austurborginni einhvers staðar, kannski uppi á Ártúnshöfða. Þarna kemur langferðabifreið merkt Selfoss. Við stöðvum hana, ræðum við bílstjórann sem ekur fullum bíl af fólki: Heyrðu, ertu ekki bara tilbúinn að skutla mér snöggvast til Keflavíkur? Svar bílstjórans er augljóst: Hvað ertu að tefja okkur? Við erum á leiðinni á Selfoss, sérðu það ekki? Ef þið hyggist taka ykkur far með mér skulið þið drífa ykkur inn í bílinn, við erum á leiðinni á Selfoss. Það var fyrir fram óþarfi að stöðva þessa bifreið því að það lá alltaf fyrir á hvaða leið hún var. Nei, við vitum alveg hvað er í boði í Brussel og við þurfum ekki að gera okkur og þeim það að leggja í þá óþörfu vinnu, þann kostnað og þá fyrirhöfn sem felst í slíku falsútkalli til samninga. Þingmaðurinn segir nei.