157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:14]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Þjóðin mun eiga fyrsta orðið í þessu máli og hún mun eiga síðasta orðið í þessu máli. Þetta hefur sannarlega verið málefni sem hefur hangið yfir okkur í áraraðir. Nú er komið að því að útkljá það. Það er komið að því að gefa þjóðinni orðið í þessu máli 29. ágúst næstkomandi. Í þessum kosningum er verið að kjósa um tækifæri. Það er verið að kjósa um það hvort fólk vill fjölga valkostum, sjá hvað gæti falist í aðild. Endanlegur samningur verður ætíð borinn undir þjóðina og ef ríkisstjórnin fær umboð í haust þá treystum við okkur til að sinna þessu verkefni vel. Ég átta mig á því að það eru tilfinningar í tengslum við þetta mál. Það er eðlilegt. Öll viljum við það besta fyrir Ísland en ég vel að sjá hvar tækifærin geta falist. Ég vil fá að sjá samning en ég vil líka hlusta á þjóðina.

(Forseti (ÞSv): Þingmaðurinn segir?)

Já.