þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég er og verð harður andstæðingur þess að Ísland gangi í Evrópusambandið og tel hagsmunum Íslands betur borgið utan þess. Ísland er ríkt samfélag sem hefur alla burði til að búa öllum þjóðfélagsþegnum sínum mannsæmandi kjör og byggja gott velferðarsamfélag sem hefur full yfirráð yfir auðlindum sínum. Þau verkefni sem þjóðin glímir við hverju sinni getur hún leyst sjálf betur en ráðamenn í Brussel og er það undir stjórnvöldum hverju sinni komið. Það eru engar töfralausnir sem fást við inngöngu í ESB sem við sem fullvalda þjóð höfum ekki fulla burði til að leysa sjálf. Vilji er allt sem þarf. Hér greiðum við atkvæði um hvort við viljum fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að ESB. Ég tel rétt að þjóðin fái að láta í ljós vilja sinn í svo umdeildu máli sem hefur klofið þjóðina lengi og segi því já við lýðræðislegri aðkomu þjóðarinnar að þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst, 29. ágúst, en ég hef gert upp hug minn, ég mun segja nei 29. ágúst.