157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:17]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V):

Frú forseti. Ég er stoltur lýðræðissinni og fullveldissinni. Ég trúi því að við beitum fullveldi okkar með því að vera virk í alþjóðasamstarfi. Við höfum séð það í gegnum tíðina hvernig það hefur farið vel með þjóðina að taka þátt í alþjóðasamstarfi og ég trúi því að það eigi líka við um ESB. Þar inni eru 27 sjálfstæð og fullvalda ríki sem gera með sér samninga um ákveðna hluti en það er enginn að tala um að þau ríki sem þar eru hafi ekki völd yfir eigin landsstjórn, hvað þá eigin fullveldi. Mér líður svolítið eins og við séum alltaf að rífast um bók sem hefur ekki verið skrifuð. Atkvæðagreiðslan í dag snýst um þjóðaratkvæði. Hún snýst ekki um inngöngu í ESB eða ekki. Ég segi: Skrifum bókina og gagnrýnum svo innihaldið. Ég segi já.