þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Eftir þau gögn sem ég hef séð við meðferð þessa máls og eftir umræðuna síðustu daga í þingsal er ljóst að það á ekki að treysta þjóðinni. Þjóðin á ekki að fá að sjá samningsmarkmið. Það verða engar rauðar línur. Þjóðin var ekki að kalla eftir þessu. Þjóðin vill alls ekki, myndi ég telja, og ég ætla að reyna að gera það sem er rétt — þjóðin myndi ekki vilja veita Viðreisn óskilyrt umboð til að semja um það hversu mikið við gefum eftir af fullveldinu. Ég treysti Viðreisn ekki fyrir þessu. Ég treysti ríkisstjórninni ekki fyrir þessu umboði. Ég tek ekki þátt í þessu pakkaleikriti sem ríkisstjórnin er að bera hér á borð. Við vitum öll að Evrópusambandið er það sem Evrópusambandið er. Ég segi nei.