þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Forseti. Ég segi hér strax í upphafi að ég mun ekki greiða atkvæði í þessu máli, kannski ekki síst vegna þess að það hefur enginn beðið um þetta mál, nákvæmlega enginn. Þetta var ekki til umfjöllunar í síðustu kosningum. Það er ekkert sem kallar á það að við förum í þetta mál. Þjóðin er ekki að biðja um þetta mál. Einu aðilarnir sem eru að biðja um það er Viðreisn. Það er pínulítill hluti af þjóðinni. Það er ekki eftirspurn eftir þessu máli hér. Það er verið að þvinga þessu máli upp á þjóðina.
(Forseti (ÞSv): Þingmaðurinn greiðir ekki atkvæði.)