157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:20]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegur forseti. Ég hef tekið eftir því að hér eru stjórnmálaflokkar sem koma upp og segjast ekki setja sig upp á móti því að það verði kosið. Það er nú gott að fólk sé ekki á móti því að kjörstaðir verði opnaðir og fólk setji atkvæði í kassa. Mér finnst kannski forvitnilegt að vita hvort fólk telji sig bundið af þeirri niðurstöðu sem kemur út úr þessari atkvæðagreiðslu. Það tel ég mig vera, ég er bundinn af þessari niðurstöðu, sama hvort hún verður mér að skapi eða ekki. Ég er Evrópusinni og hef alltaf verið skýr með það. Ég vil taka þessu efnahagslega og pólitíska bandalagi sem Evrópusambandið er. Ég tel að það muni styrkja okkar stöðu. Það mun styrkja okkar efnahagslega fullveldi og mun bæta hag heimilanna. Það er stór dagur í dag, verið að taka ákvörðun um að veita kjósendum í landinu vald til að ákveða hvaða skref eigi að taka þegar kemur að sambandinu okkar við Evrópusambandið, hvort við eigum að hefja aðildarviðræður eða ekki. Þessi ákvörðun er eins og áður sagði af þeirri stærðargráðu að það er eðlilegt að þjóðin eigi fyrsta orðið og síðasta orðið líka.

Forseti. Ég segi já.