157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:22]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Forseti. Við erum búin að vera óskaplega ósammála um Evrópusambandið alveg óskaplega lengi, það er ofur einfaldlega þannig. Ég er alveg sammála því að aðild að Evrópusambandinu er risastórt mál. Það að þjóðin fái að taka ákvörðun um það hvort við eigum að fara í þessa vegferð eða ekki er ekki jafn stórt mál nema bara út frá því að þetta er ákveðin nýlunda hér á Íslandi. Einhverra hluta vegna hafa menn hingað til ekki viljað gera það sem er rétt að gera í þessu stóra deilumáli í lýðræðissamfélagi, þ.e. að kalla þjóðina að borðinu og láta hana veita ríkisstjórninni einhverja leiðsögn. Við erum síðan bundin af niðurstöðunni. Flóknara er þetta nú ekki. Þetta er byrjun á lýðræðislegu ferli. Ég er þeirrar skoðunar að þjóðin hafi verið svikin um þetta lýðræðislega ferli ekki einu sinni heldur tvisvar. Það er verið að leiðrétta það hér. Þetta endar síðan bara á því að ef það kemur samningur eftir já í ágúst fær þjóðin að greiða atkvæði um þann samning. Flóknara er þetta ekki. Ég segi því já.