157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:25]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Á þarsíðasta löggjafarþingi var lögð fram þingsályktunartillaga um að það yrði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu. Þetta var auðvitað lagt fram af hálfu villta vinstrisins sem sat meira að segja á þessum tíma í ríkisstjórn. Var eitthvað gert með þessa þingsályktunartillögu? Auðvitað ekki, auðvitað var ekkert gert með þessa þingsályktunartillögu. Það hafði enginn óskað eftir þessu. Þá eins og nú, á þeim tíma, var þetta málið eina hjá vinstri flokkunum sem nú hefur verið skolað út af þingi. Þetta þingmál er í grunninn af sama toga, allt byggt á einhverjum misskilningi og sýndarsamráði við almenning. Ætlar fólkið hér, sem talar um að það þurfi að hlusta á þjóðina og ekki standa í vegi fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um hvaða mál sem er, að taka með sama hætti á móti næstu tillögu um aðild Íslands að NATO sem kemur þegar næsta vinstribylgja skolar fólki inn á þing? Ætla menn þá að taka til sömu orðræðu hér um þá þingsályktunartillögu? Ég ætla ekki að taka þátt í þessu leikriti hér um þjóðaratkvæðagreiðslu og segi nei við þessu þingmáli.