þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Á vordögum 2025 birtist niðurstaða lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna þar sem Ísland var efst og í næstu sætum voru Noregur og Sviss. Því gæti maður spurt sig: Hvert ætlum við að komast lengra í að bæta lífskjör? Það er ekki meiri hluti hér á þingi fyrir því að ganga í Evrópusambandið. Það er tæplega meiri hluti meðal þjóðarinnar. En það er ekkert ákall. Ríkisstjórnin er ekki sammála. Þess vegna er ekki skrýtið að ríkisstjórnin fari í þessa vegferð að spyrja þjóðina hvort hún megi fara í þetta bank á dyrnar. Við vitum hvað við höfum þegar erfiðir tímar og ólga eru bæði í Evrópu og líka vestan Atlantsála. Er þá ekki skynsamlegast, sem hefur reynst okkur svo gott í 80 ár, að vera hér uppi á okkar Atlantshafshrygg, svo fjarri vígaslóð annarra, og eiga heilbrigð og eðlileg samskipti við allar þjóðir heims í stað þess að banka á dyr og biðja um að ganga í klúbb sem er lokaður? Þingmaðurinn greiðir ekki atkvæði vegna þess að við í Framsókn styðjum þjóðaratkvæðagreiðslu.