þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Fyrir síðustu alþingiskosningar var kjósendum gefinn viss kostur á að taka afstöðu til aðildar að Evrópusambandinu út frá þeirri afstöðu sem stjórnmálaflokkarnir lýstu fyrir þær kosningar. Í slíkri spurningu var Miðflokkurinn spurður hvort hann hygðist beita sér fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandið og því svaraði flokkurinn neitandi. Hann var einnig spurður hvort hann hygðist beita sér gegn slíkri þjóðaratkvæðagreiðslu og því svaraði flokkurinn játandi. Miðflokkurinn gerir það sem hann segist ætla að gera og því er svar mitt hér nei; ekki síst þegar þingsályktunartillagan er eins illa unnin og felur í sér eins mikla og alvarlega óvissuferð og raun ber vitni og ekki síður í ljósi þess að ríkisstjórnin er klofin í málinu og vanhæf í verkið. Það er alveg ljóst út frá fyrri afstöðu og þessu fyrirliggjandi máli að það er ekki tækt að fella sig við það.
(Forseti (ÞSv): Þingmaðurinn segir?)
Ég segi nei.