þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka ráðherra og ríkisstjórn fyrir að koma fram með þetta mál og ég vil þakka utanríkismálanefnd fyrir góða vinnu, allir í nefndinni. Við tókumst á en á endanum er niðurstaða. Fyrir hverju var barist? var spurt hérna áðan. Það var barist fyrir góðu lífi, fyrir framtíðina, fyrir alla. 29. ágúst gefst tækifæri til þess að ganga til samninga um framtíðina. Þegar slíkur samningur liggur fyrir geta allir tekið ákvörðun um það hvort sá samningur sé góður fyrir framtíðina, fyrir alla, fyrir okkur, fyrir börnin okkar, fyrir barnabörnin. Ég segi já fyrir framtíðina, bæði núna og í haust. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )