157. löggjafarþing — 112. fundur, 28. maí 2026.
þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
516. mál
Frú forseti. Ég segi já. Ég segi já við þjóðaratkvæðagreiðslu því ég vil að þjóðin fái að sjá samning. Ég vil að þjóðin fái að sjá hvað raunverulega er í boði. Ég sé bara tækifæri í jái, enga áhættu. Almenningur á skilið að vita. Ég segi já. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )