skýrsla um gjaldmiðlamál.
Virðulegi forseti. Nú hefur verið birt skýrsla erlendra sérfræðinga um gjaldmiðlamál Íslands. Það er eðlilegt að við ræðum kosti og galla krónunnar og evrunnar en sú umræða verður að byggja á því sem stendur í gögnum, ekki því sem ríkisstjórnin vill að standi í þeim. Kynning Stjórnarráðsins var sú að kostnaðurinn af krónunni væri líklega meiri en ábatinn. Fjölmiðlar tóku þá framsetningu upp enda eiga þeir að geta treyst því að stjórnvöld fari rétt með eigin gögn. Þegar skýrslan er lesin blasir við önnur og flóknari mynd. Skýrslan er ekki heildstæð kostnaðar- og ábatagreining á krónunni annars vegar og evrunni hins vegar. Hún er afmörkuð greining með skýrum fyrirvörum. Hún segir að krónunni fylgi kostnaður, það er ekkert nýtt, en hún segir líka að upptaka evru feli í sér fórnarkostnað. Sjálfstæð peningastefna hverfur, viðbrögð við áföllum færast af genginu yfir á ríkisfjármál, vinnumarkað, launamyndun og atvinnu fólks. Evra lætur ekki undirliggjandi vanda íslensks efnahagslífs hverfa. Hún breytir því hvernig kostnaðurinn birtist og hver ber hann.
Við Sjálfstæðismenn höfum sagt að þjóðin eigi að geta tekið afstöðu til ESB á grundvelli réttra og skýrra upplýsinga frá stjórnvöldum. Telur hæstv. ráðherra réttmætt að segja þjóðinni að skýrslan komist að þessari niðurstöðu þegar skýrslan sjálf segir eitthvað allt annað? Telur hæstv. ráðherra að slík framsetning byggi upp traust almennings í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um inngöngu í Evrópusambandið?