157. löggjafarþing — 113. fundur,  1. júní 2026.

skýrsla um gjaldmiðlamál.

[10:33]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þessa fyrirspurn um þessa mikilvægu skýrslu en að mínu mati skilar skýrslan okkur Íslendingum einmitt afgerandi niðurstöðum. Ég mæli einnig eindregið með því að fólk fjölmenni á opinn fund sem fjármálaráðherra stendur fyrir á morgun í Hörpu og er m.a. með bæði skýrsluhöfundum og líka fyrrverandi seðlabankastjóra Króatíu, sem hefur heimsótt okkur áður og verið með mjög skýr skilaboð um reynslu Króata af því að taka upp evru.

Meginniðurstaðan í umræddri skýrslu er, hvort sem okkur líkar það betur eða verr, að krónan ýki sveiflur í stað þess að jafna þær. Þegar áföll dynja yfir, segir skýrt í skýrslunni, þá geri krónan þau enn verri. Þar að auki tökum við á okkur verulegan kostnað við að halda úti sjálfstæðum gjaldmiðli. Ávinningurinn af því sjálfstæði er að mínu mati takmarkaður og þegar við erum að tala um þennan kostnað, þennan verulega kostnað — og ég er ekki bara að tala um 100 milljarða plús sem íslensk heimili, venjuleg íslensk heimili, geta sparað árlega í lægri vaxtabyrði heldur ekki síður það sem við erum hér í þinginu að deila um og reyna að finna fjármagn til. Eigum við að tala um jarðgöng? Eigum við að tala um heilbrigðiskerfið? Eigum við að tala um menntakerfið? Við þurfum fjármagn í þetta og það er að mínu mati pólitísk ákvörðun að vera með gjaldmiðil sem er alltaf með hærri vaxtabyrði en aðrar þjóðir búa við, allt að því þrisvar sinnum hærri.

Ég var líka að lesa frétt um húsnæðismarkaðinn þar sem menn eru að draga saman seglin. Þar segja verktakar m.a. að þeir greiði að jafnaði 60 milljarða á ári vegna vaxta út af húsnæðisuppbyggingu. Auðvitað hefur þetta líka áhrif á húsnæðismarkaðinn. Við getum ekki verið með bundið fyrir bæði augu og haldið áfram eins og ekkert hafi í skorist. (Forseti hringir.) Að mínu mati er skýrslan afgerandi. Hún leggur eiginlega þá skyldu á herðar okkar, stjórnmálafólks, að taka þessa hluti lengra til þess fyrst og síðast að hugsa um heimilin í landinu, fjölskyldurnar, og líka litlu og meðalstóru fyrirtækin.