skýrsla um gjaldmiðlamál.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og eins og fyrri ferðina þá svarar ráðherra bara með svona persónulegum skoðunum sínum. Í þessari skýrslu eru engin loforð eins og Viðreisn er að reyna að lofa almenningi um 100 milljarða ávinning á ári með því að taka upp evru. Umræða um íslensku krónuna blossar gjarnan upp þegar verðbólga er há, vextir bíta heimilin og fyrirtækin finna fyrir óvissu í rekstri og það er skiljanlegt. Þess vegna fögnum við því og við viljum draga hér fram hreinskilna og opinskáa umræðu um gjaldmiðil okkar en þessi skýrsla dregur fram að íslenska krónan hefur bæði kosti og galla. Hún getur verið sveiflujafnari í stórum áföllum en hún getur líka magnað hagsveiflur og aukið verðbólguþrýsting og hækkað jú fjármagnskostnað. En hún er líka áminning um að gjaldmiðill leysir ekki þann vanda sem í raun heimili og fyrirtæki standa núna frammi fyrir. Þetta er heimatilbúinn vandi ríkisstjórnarinnar. Þetta er agaleysi í ríkisfjármálum. (Forseti hringir.) Hér er verðtrygging á launamyndun sem gengur langt umfram framleiðnivöxt á Íslandi og það er búið að vera þannig um árabil og það er skortur á festu í hagstjórn.
Þess vegna hlýt ég að spyrja hæstv. ráðherra og biðja ráðherra um að svara: (Forseti hringir.) Stendur ráðherra með þeirri framsetningu að skýrslan sýni að kostnaðurinn af krónunni sé meiri en ábatinn? Nú verður ráðherra að svara.