157. löggjafarþing — 113. fundur,  1. júní 2026.

innflutningur á kartöflum og innlend kartöfluframleiðsla.

[10:46]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Enn og aftur erum við minnt á það hvernig innlend framleiðsla stendur þegar kemur að samkeppni við erlenda framleiðslu og það á sérstaklega við í þessu tilliti þegar kemur að innlendri kartöfluframleiðslu. Staðan á framleiðslu á kartöflum árið 2025 var gríðargóð, mikil uppskera og í geymslum eru miklar birgðir en nú stefnir í að það þurfi að henda fleiri hundruð tonnum af kartöflum vegna þess að innlend framleiðsla lýtur í lægra haldi fyrir erlendri framleiðslu sem kemur inn með tollvernd sem hefur því miður ekki verið uppfærð til margra ára og tollarnir bíta þar af leiðandi verulega lítið hvað það varðar. Sömuleiðis er verið að eiga við ákveðna undanþágu sem gefin var 2021 þar sem innflutningur á kartöflum er tollfrjáls. Sú undanþága var gefin vegna slæmrar uppskeru árið 2020.

Í ljósi alls sem við höfum rætt hér undanfarið varðandi þjóðaratkvæðagreiðslu sem fyrirhuguð er í haust varðandi inngöngu í Evrópusambandið o.s.frv., þá blasir við sá veruleiki sem getur orðið ef tollvernd á innlenda framleiðslu er ekki fyrir hendi. Hann blasir við okkur núna. Það er vel gerð grein fyrir þessu máli í síðasta Bændablaði þar sem áhyggjur kartöflubænda eru viðraðar sérstaklega. Því spyr ég hæstv. atvinnuvegaráðherra: Er þetta mál komið inn á borð hæstv. ráðherra og hefur ráðherra einhver ráð til að mæta fyrir hönd bænda þeirri stöðu sem blasir við okkur í dag?