157. löggjafarþing — 113. fundur,  1. júní 2026.

innflutningur á kartöflum og innlend kartöfluframleiðsla.

[10:49]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða fyrirspurn og hann veit jafn vel og sú sem hér stendur og sennilega betur að af þeim fjölda framleiðslutegunda í landbúnaði hefur kartöfluframleiðslan undanfarin ár verið gríðarlega flöktandi. Þetta samkomulag sem hv. þingmaður vísar í frá árinu 2021 var unnið af hálfu Bændasamtakanna annars vegar og Félags atvinnurekenda hins vegar og hefur síðan verið framlengt óbreytt síðan á hverju ári. Það gildir til ársloka 2026 núna. Það felur í sér að til að mæta því sem oft hefur verið ákveðinn brestur í framboði á kartöflum er júnímánuður tollfrjáls. Þetta ár er ekkert öðruvísi að því leyti til að við erum að styðjast við þetta samkomulag frá árinu 2021 af hálfu þessara aðila en við erum mjög meðvituð um þetta. Og af því að hv. þingmaður spyr hvort það hafi verið bent á þetta mál og ég hafi verið upplýst um það þá er það svo. Ég verð nú að viðurkenna að ég man ekki nákvæmlega hvort það hafi verið nákvæmlega þannig að það hafi komið inn á borð til mín eða hvort þetta sé bara eitthvað sem ég veit vegna þess að við erum að skoða þetta. Eins og hv. þingmaður veit er í gangi mikil vinna núna við endurskoðun á búvörusamningum eða stuðningsumhverfi og starfsumhverfi landbúnaðarins og auðvitað er þetta undir eins og annað. Þetta rennur út í árslok en fyrirkomulagið er þess eðlis auðvitað að þetta mál þarf að fara í gegnum Alþingi ef það á að gera breytingar, líkt og er með aðra tolla, þannig að sumarið lítur út eins og þetta samkomulag var. En það er alveg full ástæða til að skoða það þegar kemur að endurskoðun og það er inni í vinnunni sem lýtur að endurnýjun búvörusamninga eins og ég nefndi.