innflutningur á kartöflum og innlend kartöfluframleiðsla.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég ætla að halda áfram á svipaðri braut. Talandi um tollvernd, ekki undanþáguna heldur tollverndina sem er í gildi; það er magntollur á kíló sem eru 60 kr. á kíló. Sú krónutala var fengin árið 2002 og það segir sig sjálft hvað hefur breyst á þeim tíma, síðan 2002, og þar af leiðandi er sú tollvernd sem fyrir er í dag, burt séð frá þeirri undanþágu sem við erum að ræða hér sem er í gildi til ársloka 2026, hún heldur engan veginn. Þetta er grafalvarleg staða fyrir kartöflubændur og þetta á við um fleiri tegundir innlendrar framleiðslu, hvort sem það er í kjöti, grænmeti eða öðrum framleiðsluvörum. Okkur hefur engan veginn borið gæfa til þess að endurskoða þá tolla sem við leggjum á hverju sinni. Þetta eru eldgamlar krónutölur sem við byggjum á (Forseti hringir.) og þar af leiðandi með allri þeirri breytingu sem er á gjaldmiðlum og öðru er enginn taktur í því hvernig staðan er. (Forseti hringir.) Þar af leiðandi á innlend framleiðsla verulega erfitt með að heyja samkeppni erlendis frá.